Svipmynd frá fyrri tónleikum TOSKA fríkar út. Ljósm. mm

TOSKA fríkar út – jólatónleikar framundan

Fimmtudaginn 3. desember næstkomandi fríkar Tónlistarskólinn á Akranesi út í fjórða sinn, nú í jólabúningi. Kennarar og nemendur skólans spila saman á tvennum tónleikum í Tónbergi þennan dag kl. 17:00 og 20:00.