
Kristín Eir Holaker Hauksdóttir á Skáney er íþróttmanneskja Borgfirðings 2026.
Hlutu viðurkenningar á uppskeruhátíð Borgfirðings
Hestamannafélagið Borgfirðingur hélt uppskeruhátíð sína síðastliðinn laugardag. Þar var þeim keppendum sem bestum árangri náðu á árinu veitt viðurkenning. Íþróttamanneskja Borgfirðings árið 2026 var kjörin Kristín Eir Holaker Hauksdóttir á Skáney. Í barnaflokki hlaut Kristján Fjeldsted viðurkenningu, í unglingaflokki Kristín Eir, í ungmennaflokki Raluca Schwark, í flokki áhugamana Arna Hrönn Ámundadóttir og í flokki atvinnumanna Flosi Ólafsson. Ræktunarbú ársins er Árdalur. Sýnd voru þrjú hross frá búinu og heiðursverðlaunahryssan Þruma frá Árdal; Tinni f. Árdal 9,1, Elding f. Árdal 8,47 og Svörun f. Árdal 8,08.