Staðfesta breytingu á skipulagi Galtarlækjar

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) hefur staðfest breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar sem heimilar uppbyggingu nýs hafnarsvæðis og stækkun athafnasvæðis í landi Galtarlækjar í Hvalfjarðarsveit. Breytingin nær til rúmlega 100 hektara svæðis og var samþykkt af sveitarstjórn 29. september síðastliðinn.