Breytingar á rekstrarumhverfi fjölmiðla kynnti Logi Einarsson ráðherra upphaflega í desember á síðasta ári. Frumvarpið hefur nú tekið breytingum í kjölfar athugasemda í samráðsgátt.

Aukinn stuðningur við fjölmiðla með skattlagningu auglýsinga RUV

Ríkisstjórnin hefur samþykkt fyrir sitt leyti frumvarp um breytingar á lögum um Ríkisútvarpið sem ætlað er að styrkja stöðu einkarekinna fjölmiðla og draga úr samkeppnislegum yfirburðum RÚV á íslenskum fjölmiðlamarkaði. Breytingarnar gætu haft þýðingu fyrir minni, sjálfstæða fjölmiðla sem gegna mikilvægu hlutverki í fréttaflutningi og upplýsingamiðlun í nærsamfélaginu.