
Bestar á Breytó í boði StéttVest
Stéttarfélag Vesturlands býður félagsfólki sínu á fræðslukvöld í kvöld, miðvikudaginn 11.11 klukkan 18:00 í Alþýðuhúsinu Sæunnargötu 2a í Borgarnesi. Fræðslan ber yfirskriftina „Bestar á breytó“ þar sem sálfræðingurinn Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga Nagli, mun fræða félagsfólk um þann tíma þegar kona fer í gegnum breytingarskeiðið. Með henni verður Fida Abu Libdeh frá GeoSilica.
„Kvöldið verður notalegt og tileinkað heilsu, styrk og vellíðan kvenna á besta aldri. Þar verður fræðst um mataræði, hreyfingu og bætiefni fyrir þennan nýja kafla í lífinu. Ragga Nagli mun koma inn á hvernig hreyfing og næring er áhrifaríkust á þessu tímaskeiði sem og hvaða áhrif hormónabreytingar hafa á líkamssamsetningu kvenna. Fida mun kynna kísilsteinefni og aðrar vörur fyrirtækisins GeoSilica. Þótt að fræðslan sé alfarið miðuð að konum er hún öllum opin sem áhuga hafa,“ segir í tilkynningu frá Stéttarfélagi Vesturlands. Félagið vill með þessu tryggja sínu félagsfólki fræðslu sem eykur heilbrigði og vellíðan, fræðslukvöldin verða mögulega fleiri í vetur. Viðburðurinn er þátttakendum að kostnaðarlausu.