
Anna María er ekki einungis öflug í golfi, heldur spilaði hún með meistaraflokki kvenna í blaki þar til í vor. Hér er hún ásamt Ellen Alexöndru fyrir leik í janúar á þessu ári, en þær voru yngsti og elsti keppandinn í liðinu, 48 ára aldursmunur. Ljósm. úr safni/tfk
Anna María er sjálboðaliði ársins hjá GSÍ
Á formannafundi hjá Golfsambandi Íslands um helgina var Anna María Reynisdóttir úr Golfklúbbnum Vestarr í Grundarfirði útnefnd sjálfboðaliði ársins 2026. Anna María hlýtur viðurkenninguna fyrir áratuga sjálfboðaliðastarf og ómetanlegt framlag sitt til klúbbsins. Hún hefur verið félagi í Vestarr í um 30 ár, nær allt frá stofnun klúbbsins. Hún hefur sinnt fjölbreyttum verkefnum innan félagsins, meðal annars í kvennastarfi, mótanefnd og stjórn. Síðustu sex ár hefur hún gegnt stöðu gjaldkera.