Fréttir

true

Holts saga í Snorrastofu næsta þriðjudagskvöld

Þriðjudaginn 10. nóvember kl. 20 mun Óskar Guðmundsson, rithöfundur í Reykholti, kynna nýútkomna bók sína; „Holts sögu – Þúsund ára sögu mannlífs undir Eyjafjöllum, klerka, kvenna og karla.“ Viðburðurinn fer fram í bókhlöðu Snorrastofu og er hluti af fyrirlestraröðinni „Fyrirlestrar í héraði,“ sem nýtur styrks frá Uppbyggingarsjóði Vesturlands og Borgarbyggð. Allir eru velkomnir og er…Lesa meira

true

El Niño gæti þrýst matvælaverði enn hærra

Veðurfyrirbrigðið El Niño gæti orðið óvenjulega öflugt í vetur og mun hafa áhrif á heimsmarkaðsverð matvæla á næsta ári. Alþjóðabankinn spáir 10% hækkun matvælaverðs á þessu ári og 7% til viðbótar árið 2027. Veðurfyrirbærið getur valdið þurrkum og flóðum á mikilvægum landbúnaðarsvæðum og dregið úr uppskeru. Alþjóðabankinn hefur því hækkað verðspár sínar fyrir árið 2027…Lesa meira

true

Hvalfjarðarsveit styrkir íþrótta- og frístundaiðkun barna

Hvalfjarðarsveit veitir börnum og ungmennum að 18 ára aldri styrki til íþrótta- og tómstundaiðkunar. Markmiðið er að hvetja til þátttöku í skipulögðu frístundastarfi og létta undir með fjölskyldum vegna kostnaðar við æfingar og keppni. Styrkirnir standa þeim til boða sem eiga lögheimili í sveitarfélaginu og miðast við almanaksárið. Almennur frístundastyrkur nemur 80 þúsund krónum á…Lesa meira

true

Fjölbreytt STEAM-starf í Borgarbyggð

Fjölbreyttur hópur kennara, skólastjórnenda, menningarstarfsfólks og annarra samstarfsaðila, alls rúmlega 30 manns, kom saman á STEAM-málstofu í Hjálmakletti í Borgarnesi 3. nóvember sl. Málstofan var haldin á vegum STEAM Borgarbyggðar en Signý Óskarsdóttir hafði veg og vanda af skipulagningu hennar. Dagskráin gaf góða mynd af því fjölbreytta starfi sem þegar fer fram í sveitarfélaginu og…Lesa meira

true

Bæklingur um helstu nauðsynjar á heimilum

Á vefsíðunni verumvidbuin.is má nú finna nýjan bækling sem almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra hefur gefið út. Í honum eru hagnýtar upplýsingar um hvernig heimili geta undirbúið sig fyrir alvarlega atburði eða truflanir á grunnþjónustu sem geta haft áhrif á daglegt líf. Í bæklingnum er meðal annars fjallað um nauðsynlegan búnað, hvar nálgast megi áreiðanlegar upplýsingar og hvernig…Lesa meira

true

Sundlaugin lokuð í tvo daga eftir helgi

Sundlaug Snæfellsbæjar í Ólafsvík verður lokuð mánudaginn 9. og þriðjudaginn 10. nóvember vegna viðhalds. Á meðan verður unnið að viðhaldi sundlaugarbúnaðar og skipt um vatn í lauginni. „Gestir eru beðnir velvirðingar á óþægindum sem lokunin kann að valda.“Lesa meira

true

Síðasta Kúnnakvöldið í versluninni Módel

Verslanirnar Módel og Hans og Gréta við Þjóðbraut 1 á Akranesi halda í dag Kúnnakvöld og stendur það til klukkan 22. Léttar veitingar verða í boði ásamt góðum tilboðum. Hjónin Hlín Sigurðardóttir og Guðni Tryggvason kaupmenn í Módel eru frumkvöðlar að Kúnnakvöldi en þessi viðburður hefur verið árviss síðan í nóvember 2008 þegar verslunin var…Lesa meira

true

Nornaþing á hrekkjavöku í Grundarfirði

Hin hrollvekjandi hrekkjavaka er nýliðin og var í hávegum höfð víða um land. Þá klæðir fólk sig í hrollvekjandi klæðnað og reynir að hræða samborgara sína. Börnin hafa haft afskaplega gaman af þessu og mikill spenningur sem fylgir. Síðustu tíu ár hefur ákveðinn hópur hér í Grundarfirði haldið utan um hrekkjavökuna af mikilli festu. Séð…Lesa meira

true

Vill jafna kostnað foreldra vegna skólaaksturs

Eggert Kjartansson, sveitarstjórnarmaður í Eyja- og Miklaholtshreppi, telur að núverandi fyrirkomulag skólaaksturs í sveitarfélaginu feli í sér mismunun eftir því hvaða skóla börn sækja. Sveitarfélagið greiðir fyrir akstur þeirra fimm grunnskólabarna sem stunda nám í Stykkishólmi, en foreldrar níu barna sem sækja skóla í Borgarnesi eða á Lýsuhóli þurfa sjálfir að annast akstur þeirra og…Lesa meira

true

Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng í nótt

Viðhaldsvinna fer fram í Hvalfjarðargöngum aðfararnótt föstudagsins 6. nóvember, samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni. Vinnan hefst klukkan 23:00 í kvöld og stendur til klukkan 6:30 í síðasta lagi í fyrramálið. Fylgdarakstur verður um göngin meðan á framkvæmdum stendur og mega vegfarendur búast við minniháttar umferðartöfum. Vegagerðin hvetur ökumenn til að sýna aðgát og aka varlega um…Lesa meira