
Gerðuberg í Eyja- og Miklaholtshreppi. Ljósm. mm
Vill jafna kostnað foreldra vegna skólaaksturs
Eggert Kjartansson, sveitarstjórnarmaður í Eyja- og Miklaholtshreppi, telur að núverandi fyrirkomulag skólaaksturs í sveitarfélaginu feli í sér mismunun eftir því hvaða skóla börn sækja. Sveitarfélagið greiðir fyrir akstur þeirra fimm grunnskólabarna sem stunda nám í Stykkishólmi, en foreldrar níu barna sem sækja skóla í Borgarnesi eða á Lýsuhóli þurfa sjálfir að annast akstur þeirra og bera allan kostnað af honum.