
Laufey, Hlín og Guðni í Módel. Ljósm. mm
Síðasta Kúnnakvöldið í versluninni Módel
Verslanirnar Módel og Hans og Gréta við Þjóðbraut 1 á Akranesi halda í dag Kúnnakvöld og stendur það til klukkan 22. Léttar veitingar verða í boði ásamt góðum tilboðum.
Hjónin Hlín Sigurðardóttir og Guðni Tryggvason kaupmenn í Módel eru frumkvöðlar að Kúnnakvöldi en þessi viðburður hefur verið árviss síðan í nóvember 2008 þegar verslunin var fyrst opnuð í nýju húsnæði. Saga verslunarinnar teygir sig þó allt aftur til ársins 1992. En nú eru tímamót hjá Módel því ákveðið hefur verið að loka versluninni um næstu áramót. Búið er að gera leigusamning um húsnæðið við A4 frá 1. febrúar 2027 sem mun opna verslun á Akranesi á nýju ári. Fyrirtækið rekur tíu aðrar verslanir.