Óskar Guðmundsson rithöfundur

Holts saga í Snorrastofu næsta þriðjudagskvöld

Þriðjudaginn 10. nóvember kl. 20 mun Óskar Guðmundsson, rithöfundur í Reykholti, kynna nýútkomna bók sína; „Holts sögu – Þúsund ára sögu mannlífs undir Eyjafjöllum, klerka, kvenna og karla.“ Viðburðurinn fer fram í bókhlöðu Snorrastofu og er hluti af fyrirlestraröðinni „Fyrirlestrar í héraði,“ sem nýtur styrks frá Uppbyggingarsjóði Vesturlands og Borgarbyggð. Allir eru velkomnir og er aðgangur ókeypis, veitingar í hléi.