
Samsett mynd: Chat GPT
El Niño gæti þrýst matvælaverði enn hærra
Veðurfyrirbrigðið El Niño gæti orðið óvenjulega öflugt í vetur og mun hafa áhrif á heimsmarkaðsverð matvæla á næsta ári. Alþjóðabankinn spáir 10% hækkun matvælaverðs á þessu ári og 7% til viðbótar árið 2027. Veðurfyrirbærið getur valdið þurrkum og flóðum á mikilvægum landbúnaðarsvæðum og dregið úr uppskeru. Alþjóðabankinn hefur því hækkað verðspár sínar fyrir árið 2027 verulega frá því í apríl. Því er spáð að hrísgrjón muni hækka í verði um 21%, kakó um 29%, pálmaolía um 15% og sykur um 12%. Þetta eru hækkanir á verðspám, ekki áætlaðar verðhækkanir milli ára. Hátt orkuverð og truflanir á alþjóðaviðskiptum auka enn frekar óvissuna.