Skólakórinn var hræðilegur á að líta og hrollur fór um áhorfendur á meðan flutningur lagsins fór fram. Kórinn fór samt af sviðinu í lok flutnings undir dynjandi lófaklappi áhorfenda. Ljósmyndir: TFK

Nornaþing á hrekkjavöku í Grundarfirði

Hin hrollvekjandi hrekkjavaka er nýliðin og var í hávegum höfð víða um land. Þá klæðir fólk sig í hrollvekjandi klæðnað og reynir að hræða samborgara sína. Börnin hafa haft afskaplega gaman af þessu og mikill spenningur sem fylgir. Síðustu tíu ár hefur ákveðinn hópur hér í Grundarfirði haldið utan um hrekkjavökuna af mikilli festu. Séð um að íbúar skrái hús sín sem vilja fá hræðilegar heimsóknir, útbúið draugaskóginn sem hefur vakið mikla lukku og staðið fyrir ýmsum viðburðum tengdum hrekkjavökunni.