
Stjórnsýsluhúsið á Hagamel. Ljósm. arg.
Hvalfjarðarsveit styrkir íþrótta- og frístundaiðkun barna
Hvalfjarðarsveit veitir börnum og ungmennum að 18 ára aldri styrki til íþrótta- og tómstundaiðkunar. Markmiðið er að hvetja til þátttöku í skipulögðu frístundastarfi og létta undir með fjölskyldum vegna kostnaðar við æfingar og keppni. Styrkirnir standa þeim til boða sem eiga lögheimili í sveitarfélaginu og miðast við almanaksárið.