Svipmynd frá deginum.

Fjölbreytt STEAM-starf í Borgarbyggð

Fjölbreyttur hópur kennara, skólastjórnenda, menningarstarfsfólks og annarra samstarfsaðila, alls rúmlega 30 manns, kom saman á STEAM-málstofu í Hjálmakletti í Borgarnesi 3. nóvember sl. Málstofan var haldin á vegum STEAM Borgarbyggðar en Signý Óskarsdóttir hafði veg og vanda af skipulagningu hennar. Dagskráin gaf góða mynd af því fjölbreytta starfi sem þegar fer fram í sveitarfélaginu og þeim tækifærum sem felast í auknu samstarfi skóla og samfélags.

Málstofan hófst á erindi frá STEM Íslandi þar sem fjallað var um mikilvægi staðbundinna STEM námsvistkerfa sem tengja saman skóla, atvinnulíf, stofnanir og samfélagið í heild. Hugmyndafræðin byggir á því að menntun sé sameiginlegt samfélagslegt viðfangsefni og að með því að nýta þekkingu, aðstöðu og mannauð samfélagsins megi skapa börnum og ungmennum fjölbreyttari námstækifæri. Námsvistkerfi er þó ekki aðeins formlegt samstarf heldur lifandi afl sem byggist á virkri þátttöku fólks og stofnana, sameiginlegri sýn og vilja til samstarfs.

Í erindinu kynnti STEM Ísland jafnframt SamVist, vettvang sem tengir saman samfélagsdrifin námsvistkerfi á landsbyggðinni og stuðlar að miðlun reynslu, þekkingar og bestu starfsvenja. Einnig var fjallað um Newton-líkanið sem leið til að styrkja innviði STEM menntunar og jafna aðgengi nemenda að verklegu og rannsóknarmiðuðu námi.

Á málstofunni voru kynnt fjölbreytt verkefni úr leik-, grunn- og framhaldsskólum Borgarbyggðar sem sýndu hvernig sköpun, vísindi, tækni og rannsóknir fléttast saman í skólastarfi. Fulltrúar Menntaskóla Borgarfjarðar sögðu frá þróun STEAM-áfanga og Kvikunni, sem er vísir að FabLab-aðstöðu skólans og veitir nemendum tækifæri til að þróa hugmyndir og tengja saman ólíkar námsgreinar. Frá leikskólunum Klettaborg og Andabæ var kynnt þróunarverkefni um STEAM og leiðsagnarmat þar sem áhersla er lögð á rannsóknargleði, sköpun og virka þátttöku barna í eigin námi.

Grunnskólinn í Borgarnesi kynnti verkefnið Rýmið – Allt byrjar sem hugmynd, þar sem sköpun er nýtt til að efla vellíðan, sjálfstjáningu og trú nemenda á eigin getu. Frá Grunnskóla Borgarfjarðar var sagt frá verkefninu Skipulagt kaos, þar sem samvinna við nemendur hefur leitt til breytinga á stærðfræðikennslu og aukinnar ánægju með námið. Einnig voru kynnt fjölbreytt verkefni þar sem nemendur takast á við raunverulegar áskoranir í stærðfræði, náttúrufræði og eðlisfræði.

Í leikskólanum Uglukletti er unnið að rannsóknarverkefninu Stilla – hæglátt leikskólastarf, þar sem áhersla er lögð á að gefa börnum tíma og rými til leikja, könnunar og sköpunar. Verkefnið hefur verið tilnefnt til Íslensku menntaverðlaunanna 2026. Listaskóli Borgarfjarðar fjallaði um mikilvægi listmenntunar og þess að tryggja börnum og ungmennum gott aðgengi að listum og skapandi námi.

Málstofan sýndi jafnframt hvernig fjölbreyttar stofnanir og fyrirtæki utan skólakerfisins geta auðgað námsumhverfi barna og ungmenna. Sveppasmiðjan kynnti tækifæri til samstarfs við skóla um sjálfbæra matvælaframleiðslu, rannsóknir og vistvænar lausnir, meðal annars í tengslum við evrópskt samstarf. Frá Safnahúsi Borgarfjarðar var fjallað um hvernig söfn og menningararfur geta orðið lifandi vettvangur náms, rannsókna og sköpunar. Að lokum kynnti Úti er ævintýri fjölbreytt útivistar- og náttúrutengd námskeið þar sem börn og ungmenni fá tækifæri til að efla færni sína og tengsl við náttúruna.

Málstofan dró þannig fram þann mikla mannauð, þekkingu og sköpunarkraft sem er til staðar í Borgarbyggð. Þótt verkefnin séu ólík eiga þau það sameiginlegt að efla forvitni, sköpun, rannsóknargleði og virka þátttöku barna og ungmenna. Jafnframt sýndu þau hversu fjölbreytt tækifæri felast í því að nýta samfélagið sjálft sem námsvettvang.

Í því felast einmitt tækifærin við áframhaldandi uppbyggingu STEAM Borgarbyggðar: Að tengja saman það öfluga starf sem þegar fer fram og styrkja samstarf skóla, stofnana og samfélagsins alls til að skapa fjölbreyttari námstækifæri fyrir börn og ungmenni.

Huld Hafliðadóttir, Stem Ísland og Steam Borgarbyggð