
Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng í nótt
Viðhaldsvinna fer fram í Hvalfjarðargöngum aðfararnótt föstudagsins 6. nóvember, samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni. Vinnan hefst klukkan 23:00 í kvöld og stendur til klukkan 6:30 í síðasta lagi í fyrramálið. Fylgdarakstur verður um göngin meðan á framkvæmdum stendur og mega vegfarendur búast við minniháttar umferðartöfum. Vegagerðin hvetur ökumenn til að sýna aðgát og aka varlega um göngin. Neyðarbifreiðar hafa ávallt forgang.