Bæklingur um helstu nauðsynjar á heimilum

Á vefsíðunni verumvidbuin.is má nú finna nýjan bækling sem almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra hefur gefið út. Í honum eru hagnýtar upplýsingar um hvernig heimili geta undirbúið sig fyrir alvarlega atburði eða truflanir á grunnþjónustu sem geta haft áhrif á daglegt líf. Í bæklingnum er meðal annars fjallað um nauðsynlegan búnað, hvar nálgast megi áreiðanlegar upplýsingar og hvernig hægt er að efla viðbúnað heimila svo sem ef óvæntar aðstæður koma upp, t.d. náttúruhamfarir, rafmagnsleysi, óveður og fjarskiptatruflanir.