Fréttir

true

Kristín er Íslandsmeistari í klassískum lyftingum

Íslandsmeistaramót í klassískum kraftlyftingum fór fram í íþróttahúsinu Miðgarði í Garðabæ á laugardaginn. Kristín Þórhallsdóttir úr ÍA keppti í +84 kg opnum flokki. Hún sigraði bæði í flokknum og var jafnframt stigahæsti keppandi mótsins og því Íslandsmeistari kvenna 2026. Kristín náði átta af níu lyftum gildum og setti fjölmörg Íslandsmet bæði í opnum flokki og…Lesa meira

true

Undirbúa sölu Ljósleiðarans

Hluthafafundur Ljósleiðarans samþykkti í gær að veita umboð til aðgerða sem leitt gætu til breytinga á eignarhaldi félagsins. Nú er Ljósleiðarinn að öllu leyti í eigu Orkuveitunnar, sem aftur er að fullu í eigu sveitarfélaganna Reykjavíkurborgar, Akraneskaupstaðar og Borgarbyggðar. Samþykkt hluthafafundar Ljósleiðarans var því samþykkt með fyrirvara um staðfestingu eigenda Orkuveitunnar. Reykjavíkurborg, sem stærsti eigandinn,…Lesa meira

true

Ljósmyndir í brennidepli á Safnamolum í Borgarnesi

Safnamolar hefjast á ný í Safnahúsi Borgarfjarðar í dag, þriðjudaginn 27. október, klukkan 15. Að þessu sinni mun Þórný Hlynsdóttir héraðsskjalavörður fjalla um ljósmyndir í safneign og hvernig staðið er að skönnun, skráningu og miðlun þeirra. Meðal annars verður sagt frá birtingu ljósmynda á miðlunarvef skjalasafnsins og í menningarsögulega gagnasafninu Sarpi. Viðburðurinn fer fram í…Lesa meira

true

Rannsóknarhola á Grundartanga boruð niður á 1.504 metra dýpi

Borun rannsóknarholu á Grundartanga lauk föstudaginn 16. október, en þá hafði holan náð 1.504 metra dýpi. Markmið verkefnisins er að kanna hvort jarðlög á svæðinu henti til varanlegrar bindingar koldíoxíðs (CO₂) í bergi. Að verkefninu standa Carbfix, Elkem, Norðurál og Þróunarfélag Grundartanga, með stuðningi Orku- og loftslagssjóðs. Með rannsóknunum er leitast við að afla upplýsinga…Lesa meira

true

Þýskur tónlistarhópur á næstu tónleikum Kalmans

Þýski tónlistarhópurinn Ensemble WAKS kemur fram á tónleikum á vegum Kalman – tónlistarfélags Akraness í Vinaminni fimmtudaginn 29. október kl. 20. Á efnisskránni er Sofia’s Travels, fjölbreytt og áhrifamikil tónlistardagskrá þar sem jiddísk tónlist, sögulegar upptökur, nýjar útsetningar og frumsamin tónlist fléttast saman við frásögn og margmiðlun. Ensemble WAKS skipa Inge Mandos, söngur og upplestur,…Lesa meira

true

Steyptu brúargólf í Gufufirði

Vel gekk að steypa gólf nýrrar brúar yfir Gufufjörð í síðustu viku en alls tók verkið hálfan annan sólarhring. Steypubílar fóru 300 ferðir, en steypan var hrærð á svæðinu. Fluttu bílarnir alls 1.280 rúmmetra. Brúin er 130 metra löng og verður mikilvægur hlekkur í umfangsmiklum vegabótum á svæðinu.  Verkefnið felur þó ekki í sér einungis…Lesa meira

true

Rökkurdagar hafnir í Grundarfirði

Menningarhátíðin Rökkurdagar hófst í Grundarfirði síðastliðinn laugardag og stendur til 4. nóvember. Fjölbreytt dagskrá er í boði næstu daga þar sem tónlist, kvikmyndir, sköpun og ýmsir menningarviðburðir fyrir börn og fullorðna verða í öndvegi. Meðal stærstu viðburða er Hrekkjavaka í Grundó sem haldin verður í tíunda sinn í ár. Hátíðinni var raunar þjófstartað með tónlistarhátíðinni…Lesa meira

true

Nýtt líf færist í gamla Landsbankahúsið á Akranesi

Umfangsmiklar endurbætur hafnar á húsinu Gamla Landsbankahúsið við Suðurgötu 57 á Akranesi fær nýtt hlutverk þegar því verður breytt í hótel með 22 herbergjum. Framkvæmdir standa nú yfir og stefnt er að því að fyrstu hlutar hótelsins geti tekið til starfa næsta sumar. Jafnframt leita eigendurnir að rekstraraðila fyrir veitingastað, kaffihús eða aðra þjónustu á…Lesa meira

true

Öruggur útisigur ÍA á Þór í Þorlákshöfn

ÍA vann góðan tíu stiga sigur á Þór Þorlákshöfn, 104:94, í 1. deild karla í körfuknattleik síðastliðið föstudagskvöld. Leikið var í Icelandic Glacial höllinni í Þorlákshöfn að viðstöddum 170 áhorfendum. Skagamenn tóku frumkvæðið strax í upphafi og leiddu með sjö stigum eftir fyrsta leikhluta, 27:20. Heimamenn náðu að minnka muninn lítillega í öðrum leikhluta en…Lesa meira

true

Skallagrímskonur töpuðu naumlega fyrir Haukum

Skallagrímskonur máttu sætta sig við naumt tveggja stiga tap, 72:74, gegn Haukum í 1. deild kvenna í körfuknattleik í Borgarnesi á laugardag. Heimakonur höfðu frumkvæðið í upphafi og leiddu lengst af fyrri hálfleik, en gestirnir náðu að jafna metin fyrir síðasta leikhlutann og knýja fram sigur í jöfnum og spennandi leik. Skallagrímur leiddi 24:16 eftir…Lesa meira