Frá borsvæðinu. Ljósm. Hvalfjarðarsveit

Rannsóknarhola á Grundartanga boruð niður á 1.504 metra dýpi

Borun rannsóknarholu á Grundartanga lauk föstudaginn 16. október, en þá hafði holan náð 1.504 metra dýpi. Markmið verkefnisins er að kanna hvort jarðlög á svæðinu henti til varanlegrar bindingar koldíoxíðs (CO₂) í bergi. Að verkefninu standa Carbfix, Elkem, Norðurál og Þróunarfélag Grundartanga, með stuðningi Orku- og loftslagssjóðs. Með rannsóknunum er leitast við að afla upplýsinga um eiginleika berggrunnsins og möguleika á að dæla koldíoxíði frá iðnaðarstarfsemi á svæðinu niður í berglögin til varanlegrar bindingar. Að borun lokinni var unnið að rennslismælingum og ádælingarprófunum ásamt úrvinnslu fyrstu niðurstaðna. Gert er ráð fyrir að frekari niðurstöður liggi fyrir í nóvember.