Rökkurdagar hafnir í Grundarfirði

Menningarhátíðin Rökkurdagar hófst í Grundarfirði síðastliðinn laugardag og stendur til 4. nóvember. Fjölbreytt dagskrá er í boði næstu daga þar sem tónlist, kvikmyndir, sköpun og ýmsir menningarviðburðir fyrir börn og fullorðna verða í öndvegi. Meðal stærstu viðburða er Hrekkjavaka í Grundó sem haldin verður í tíunda sinn í ár.