
Öruggur útisigur ÍA á Þór í Þorlákshöfn
ÍA vann góðan tíu stiga sigur á Þór Þorlákshöfn, 104:94, í 1. deild karla í körfuknattleik síðastliðið föstudagskvöld. Leikið var í Icelandic Glacial höllinni í Þorlákshöfn að viðstöddum 170 áhorfendum. Skagamenn tóku frumkvæðið strax í upphafi og leiddu með sjö stigum eftir fyrsta leikhluta, 27:20. Heimamenn náðu að minnka muninn lítillega í öðrum leikhluta en ÍA hafði fimm stiga forskot í hálfleik, 50:45. Liðin skiptust á körfum í þriðja leikhluta sem endaði 28:28 og staðan því 78:73 fyrir lokaleikhlutann. Þar reyndust Skagamenn sterkari, unnu fjórðunginn 26:21 og tryggðu sér verðskuldaðan sigur, 104:94. ÍA hafði yfirhöndina allan leikinn og náði mest 13 stiga forskoti.