
Skallagrímskonur töpuðu naumlega fyrir Haukum
Skallagrímskonur máttu sætta sig við naumt tveggja stiga tap, 72:74, gegn Haukum í 1. deild kvenna í körfuknattleik í Borgarnesi á laugardag. Heimakonur höfðu frumkvæðið í upphafi og leiddu lengst af fyrri hálfleik, en gestirnir náðu að jafna metin fyrir síðasta leikhlutann og knýja fram sigur í jöfnum og spennandi leik.