
Kristín er Íslandsmeistari í klassískum lyftingum
Íslandsmeistaramót í klassískum kraftlyftingum fór fram í íþróttahúsinu Miðgarði í Garðabæ á laugardaginn. Kristín Þórhallsdóttir úr ÍA keppti í +84 kg opnum flokki. Hún sigraði bæði í flokknum og var jafnframt stigahæsti keppandi mótsins og því Íslandsmeistari kvenna 2026.