
Þýskur tónlistarhópur á næstu tónleikum Kalmans
Þýski tónlistarhópurinn Ensemble WAKS kemur fram á tónleikum á vegum Kalman – tónlistarfélags Akraness í Vinaminni fimmtudaginn 29. október kl. 20. Á efnisskránni er Sofia’s Travels, fjölbreytt og áhrifamikil tónlistardagskrá þar sem jiddísk tónlist, sögulegar upptökur, nýjar útsetningar og frumsamin tónlist fléttast saman við frásögn og margmiðlun.