
Svipmynd frá steypudeginum stóra. Ljósm. Guðlaugur Albertsson
Steyptu brúargólf í Gufufirði
Vel gekk að steypa gólf nýrrar brúar yfir Gufufjörð í síðustu viku en alls tók verkið hálfan annan sólarhring. Steypubílar fóru 300 ferðir, en steypan var hrærð á svæðinu. Fluttu bílarnir alls 1.280 rúmmetra. Brúin er 130 metra löng og verður mikilvægur hlekkur í umfangsmiklum vegabótum á svæðinu.