Fréttir

true

Staða og framtíð ferðaþjónustunnar

Samtök ferðaþjónustunnar, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða boða til opins fundar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi á morgun, fimmtudaginn 22. október. Fundurinn verður haldinn í Hjálmakletti í Borgarnesi kl. 17–19 undir yfirskriftinni „Mótvindur – Eru stjórnvöld helsta hindrun ferðaþjónustunnar?“ Fjallað verður um helstu áskoranir greinarinnar og Deloitte kynnir greiningu á fyrirhuguðum skatta- og…Lesa meira

true

Vindorkuver í Garpsdal sett í nýtingarflokk en Grjótháls í biðflokk

Verkefnisstjórn sjötta áfanga rammaáætlunar hefur flokkað sjö vindorkuverkefni og sett tillögu sína ásamt skýrslu og fylgisskjölum í 12 vikna samráð í samráðsgátt stjórnvalda. Starfshópurinn er skipaður að beiðni Jóhanns Páls Jóhannssonar umhverfisráðherra. Vindorkuverin sem verkefnisstjórn tók til skoðunar eru Alviðra á Grjóthálsi í Borgarfirði, Garpsdalur í Reykhólasveit, Sólheimar í Laxárdal í Dölum, tveir vindorkugarðar á…Lesa meira

true

Alvarlegir öryggisgallar gætu valdið truflunum á vefþjónustu

Netöryggissveit íslenskra stjórnvalda, CERT-IS, varar við tveimur alvarlegum öryggisgöllum í forritunarmálinu PHP, sem er notað við rekstur fjölda vefsíðna, meðal annars þeirra sem byggja á WordPress, Drupal og Joomla. Gallarnir gætu gert tölvuþrjótum kleift að ná yfirráðum yfir viðkvæmum tölvukerfum í gegnum internetið. CERT-IS hvetur fyrirtæki og stofnanir sem nota PHP til að setja upp…Lesa meira

true

Kennarasambandið byrjaði samtal um framtíð skólastarfs í Borgarnesi

Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambands Íslands og Mjöll Matthíasdóttir formaður Félags Grunnskólakennara áttu í gær fund með sveitarstjórnarfólki og skólafólki í Borgarbyggð. Fundurinn var sá fyrsti í fundaröð Kennarasambandsins um framtíð skólastarfs. Hann var fjölmennur en um þrjátíu manns mættu af hálfu sveitarfélagsins. Skólamálin voru rædd vítt og breitt. „Þetta var frábær byrjun á vonandi…Lesa meira

true

Tímabundin móttaka úrgangs í Hvalfjarðarsveit

Hvalfjarðarsveit hefur kynnt tímabundnar ráðstafanir vegna móttöku úrgangs í sveitarfélaginu á meðan unnið er að framtíðarlausn í málaflokknum. Fimmtudaginn 22. október verður raftækjum og spilliefnum safnað gjaldfrjálst við heimili íbúa. Óska þarf eftir þjónustunni hjá skrifstofu sveitarfélagsins í síðasta lagi í dag 21. október, í síma 433-8500 eða með tölvupósti á hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is. Dagana 23.–26. október…Lesa meira

true

Bleikur dagur í stjórnsýsluhúsi Dalabyggðar

Starfsfólk stjórnsýsluhúss Dalabyggðar klæddist bleiku í dag, miðvikudaginn 21. október, í tilefni af Bleika deginum. Með því vill starfsfólkið sýna samstöðu með þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum þeirra. Af þessu tilefni var einnig boðið upp á morgunkaffi með bleikum veitingum og skreytingum. Bleiki dagurinn er árleg áminning um mikilvægi forvarna, snemmgreiningar og…Lesa meira

true

Frá heimspeki Forn-Grikkja til samfélagsgerðar nútímans

„Það er heilt samfélag á bak við þetta Excel-skjal“ Jovana Pavlović sendir frá sér sína fyrstu bók; Antithesis – Sjálfsmynd og samfélagið þar sem hún beinir sjónum að samfélaginu, einstaklingshyggju og þeim öflum sem móta líf okkar og hugsun. Jovana, sem er búsett í Borgarnesi, er óhrædd við að ögra viðteknum hugmyndum og vill með…Lesa meira

true

Hildur fékk veiðarfæri í skrúfuna

Í gærmorgun var áhöfn björgunarskipsins Sigurvins á Siglufirði kölluð út vegna Hildar SH, 475 tonna fiskiskips, sem hafði fengið veiðarfæri í skrúfuna og í kjölfarið orðið aflvana. Skipið var þá statt um miðja vegu milli Siglufjarðar og Grímseyjar. Átta manna áhöfn var um borð, en ágætis veður var á staðnum og áhöfnin ekki í neinni…Lesa meira

true

Víða hálka á götum og gangstéttum

Nú í morgun hafði frosið á raka jörð og því er víða hálka og ástæða til að hvetja alla til að fara varlega í umferðinni. Hitastig næstu daga verður um eða undir frostmarki, en á laugardaginn verður talsvert frost á öllu landinu. Förum varlega!Lesa meira

true

Nýtt hreyfinámskeið fyrir fólk með fötlun á Akranesi

Nýtt hreyfinámskeið fyrir fólk með fötlun, 18 ára og eldra, hefst í World Class á Akranesi mánudaginn 26. október. Markmiðið er að efla hreyfingu og vellíðan þátttakenda og kynna þeim undirstöðuatriði líkamsræktar í öruggu og hvetjandi umhverfi. Námskeiðið verður haldið á mánudögum kl. 13.30–14.15 undir leiðsögn Geralds Brimis Einarssonar, þjálfara hjá World Class. Áhersla verður…Lesa meira