
Frá fundinum í Borgarbyggð. Ljósm. KÍ
Kennarasambandið byrjaði samtal um framtíð skólastarfs í Borgarnesi
Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambands Íslands og Mjöll Matthíasdóttir formaður Félags Grunnskólakennara áttu í gær fund með sveitarstjórnarfólki og skólafólki í Borgarbyggð. Fundurinn var sá fyrsti í fundaröð Kennarasambandsins um framtíð skólastarfs. Hann var fjölmennur en um þrjátíu manns mættu af hálfu sveitarfélagsins. Skólamálin voru rædd vítt og breitt.