Staða og framtíð ferðaþjónustunnar

Samtök ferðaþjónustunnar, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða boða til opins fundar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi á morgun, fimmtudaginn 22. október. Fundurinn verður haldinn í Hjálmakletti í Borgarnesi kl. 17–19 undir yfirskriftinni „Mótvindur – Eru stjórnvöld helsta hindrun ferðaþjónustunnar?“ Fjallað verður um helstu áskoranir greinarinnar og Deloitte kynnir greiningu á fyrirhuguðum skatta- og gjaldahækkunum. Þá gefst fundargestum tækifæri til að ræða við þingmenn kjördæmisins um málefni ferðaþjónustunnar.

Fundurinn er öllum opinn og verður einnig sýndur í beinu streymi á saf.is, en óskað er eftir skráningu þeirra sem mæta á staðinn.