Bleikur dagur í stjórnsýsluhúsi Dalabyggðar

Starfsfólk stjórnsýsluhúss Dalabyggðar klæddist bleiku í dag, miðvikudaginn 21. október, í tilefni af Bleika deginum. Með því vill starfsfólkið sýna samstöðu með þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum þeirra. Af þessu tilefni var einnig boðið upp á morgunkaffi með bleikum veitingum og skreytingum.