Skipin komin til hafnar á Dalvík. Ljósm. Landsbjörg

Hildur fékk veiðarfæri í skrúfuna

Í gærmorgun var áhöfn björgunarskipsins Sigurvins á Siglufirði kölluð út vegna Hildar SH, 475 tonna fiskiskips, sem hafði fengið veiðarfæri í skrúfuna og í kjölfarið orðið aflvana. Skipið var þá statt um miðja vegu milli Siglufjarðar og Grímseyjar. Átta manna áhöfn var um borð, en ágætis veður var á staðnum og áhöfnin ekki í neinni hættu.

Sigurvin var kominn að Hildi um ellefu leitið í gærmorgun og komu áhafnir skipanna taug á milli þeirra og stefnan sett á Dalvík. Ferðin gekk hægt en örugglega og komu skipin til hafnar á Dalvík rétt upp úr klukkan 16. Áhöfn Sigurvins færði þá björgunarskipið á síðu Hildar til að hafa betri stjórn á henni við að leggja henni að bryggju.