
Tímabundin móttaka úrgangs í Hvalfjarðarsveit
Hvalfjarðarsveit hefur kynnt tímabundnar ráðstafanir vegna móttöku úrgangs í sveitarfélaginu á meðan unnið er að framtíðarlausn í málaflokknum. Fimmtudaginn 22. október verður raftækjum og spilliefnum safnað gjaldfrjálst við heimili íbúa. Óska þarf eftir þjónustunni hjá skrifstofu sveitarfélagsins í síðasta lagi í dag 21. október, í síma 433-8500 eða með tölvupósti á hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is. Dagana 23.–26. október verða jafnframt gámar fyrir málma og grófan úrgang til urðunar staðsettir á grenndarstöðinni í Melahverfi.
Íbúum er einnig bent á móttökustöðina að Sólbakka 12 í Borgarnesi og móttökusvæði Íslenska gámafélagsins á Kalksléttu á Esjumelum, þar sem tekið er við úrgangi gegn gjaldi samkvæmt gjaldskrá. Sveitarfélagið áréttar að um tímabundna þjónustu sé að ræða á meðan unnið er að varanlegri lausn fyrir úrgangsmál í Hvalfjarðarsveit.