
Alvarlegir öryggisgallar gætu valdið truflunum á vefþjónustu
Netöryggissveit íslenskra stjórnvalda, CERT-IS, varar við tveimur alvarlegum öryggisgöllum í forritunarmálinu PHP, sem er notað við rekstur fjölda vefsíðna, meðal annars þeirra sem byggja á WordPress, Drupal og Joomla. Gallarnir gætu gert tölvuþrjótum kleift að ná yfirráðum yfir viðkvæmum tölvukerfum í gegnum internetið. CERT-IS hvetur fyrirtæki og stofnanir sem nota PHP til að setja upp öryggisuppfærslur eins fljótt og auðið er. Gert er ráð fyrir að þær verði aðgengilegar klukkan 14 í dag, miðvikudaginn 21. október. Þar sem ekki er unnt að uppfæra kerfi tafarlaust gæti þurft að takmarka aðgang að þeim eða loka þeim tímabundið.
Nágrannaþjóðir hafa þegar gripið til varúðarráðstafana. Í Hollandi hefur meðal annars verið lokað tímabundið fyrir aðgang að opinberri auðkennisþjónustu, stórum fréttavef og hluta af vefjum þingsins. Sambærilegar aðgerðir eru fyrirhugaðar í Finnlandi. CERT-IS bendir á að almenningur kunni að verða var við tímabundnar truflanir á vefþjónustu meðan unnið er að öryggisuppfærslum. Nánari upplýsingar eru á vef CERT-IS.