Svipmynd tekin yfir Grjóthálsi, sem liggur milli Þverárhlíðar og Norðurárdals í Borgarfirði. Ljósm. mm

Vindorkuver í Garpsdal sett í nýtingarflokk en Grjótháls í biðflokk

Verkefnisstjórn sjötta áfanga rammaáætlunar hefur flokkað sjö vindorkuverkefni og sett tillögu sína ásamt skýrslu og fylgisskjölum í 12 vikna samráð í samráðsgátt stjórnvalda. Starfshópurinn er skipaður að beiðni Jóhanns Páls Jóhannssonar umhverfisráðherra. Vindorkuverin sem verkefnisstjórn tók til skoðunar eru Alviðra á Grjóthálsi í Borgarfirði, Garpsdalur í Reykhólasveit, Sólheimar í Laxárdal í Dölum, tveir vindorkugarðar á Mosfellsheiði, auk Hnotasteins á norðausturlandi og Hrútmúlavirkjunar á Suðurlandi. Samkvæmt tillögum verkefnisstjórnar er Garpsdalsvirkjun sett í nýtingarflokk en í biðflokk fara annars vegar Alviðra á Grjóthálsi og hins vegar Hnotasteinn fyrir austan. Aðrir virkjanakostir eru skilgreindir í verndarflokk. „Flokkunin er sett fram að undangengnu mati fjögurra faghópa, greiningu og samræmingu verkefnisstjórnar,“ segir í rökstuðningi.