Nýtt hreyfinámskeið fyrir fólk með fötlun á Akranesi

Nýtt hreyfinámskeið fyrir fólk með fötlun, 18 ára og eldra, hefst í World Class á Akranesi mánudaginn 26. október. Markmiðið er að efla hreyfingu og vellíðan þátttakenda og kynna þeim undirstöðuatriði líkamsræktar í öruggu og hvetjandi umhverfi.