Fréttir

true

Skagamenn burstuðu Skallagrím í Borgarnesi

Skagamenn fóru mikinn þegar þeir heimsóttu Skallagrím í Borgarnes á föstudagskvöldið og unnu stórsigur, 111:74, í annarri umferð 1. deildar karla í körfuknattleik. ÍA hefur þar með unnið báða leiki sína í upphafi tímabilsins og sýnt mikinn styrk í sínum sóknarleik. Skagamenn, undir stjórn Hjalta Þórs Vilhjálmssonar, höfðu mikla yfirburði í Vesturlandsslagnum og sigruðu að…Lesa meira

true

Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn eftir erfiða byrjun

Skagamenn sýndu seiglu og unnu upp tveggja marka forskot Víkings þegar liðin skildu jöfn, 2:2, á Víkingsvelli í Fossvogi í gærkvöldi. Leikurinn var liður í 25. umferð Bestu deildar karla, en Víkingar höfðu þegar tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn. ÍA er áfram í fimmta sæti deildarinnar og heldur í vonina um Evrópusæti. Heimamenn hófu leikinn af miklum…Lesa meira

true

Hópur frumkvöðla valinn í Startup Landið

Fjórtán nýsköpunarverkefni af öllu landinu hafa verið valin til þátttöku í viðskiptahraðlinum Startup Landið 2026. Hraðallinn er sérstaklega hannaður til að efla atvinnulíf, verðmætasköpun og nýsköpun á landsbyggðinni. „Startup Landið veitir frumkvöðlum og smáfyrirtækjum utan höfuðborgarsvæðisins verkfæri, fræðslu og sérfræðiaðstoð til að þróa hugmyndir sínar áfram. Þátttakendur sækja vinnustofur, fá leiðsögn frá reynslumiklum mentorum og…Lesa meira

true

Vel sóttur fundur um menningarmál og menningarhús

Fimmtudaginn 8. október var haldinn opinn íbúafundur á vegum Menningarnefndar Dalabyggðar, þar sem rædd voru málefni félagsheimila og annarra menningarhúsa, sem og málefni hátíða, sem Dalabyggð hefur staðið að. Þau Bjarnheiður Jóhannsdóttir, Guðmundur Bæringsson og Jón Egill Jóhannsson, aðalmenn menningarmálanefndar, sátu fyrir svörum og rædduu málin vítt og breitt við íbúa. Fundurinn var vel sóttur…Lesa meira

true

Þórdís hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi læsiskennslu

Þórdís Þórisdóttir, sérkennari við Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit, hefur hlotið viðurkenningu úr minningarsjóði Rósu Eggertsdóttur fyrir framúrskarandi starf á sviði læsiskennslu. Viðurkenningin er veitt kennurum sem skara fram úr í faglegu starfi og stuðla með vandaðri og árangursríkri kennslu að auknu læsi og betri námsárangri barna. Verðlaunin voru afhent á Námstefnu í byrjendalæsi við Háskólann á…Lesa meira

true

Lögregluembættum fækkað úr níu í þrjú

Dómsmálaráðuneytið hefur lagt fram drög að frumvarpi um umfangsmiklar breytingar á skipulagi lögreglunnar. Samkvæmt þeim verður lögregluembættum landsins fækkað úr níu í þrjú, þar af verða tvö öflug embætti á landsbyggðinni og eitt á suðvesturhorninu. Markmiðið er að efla faglega getu lögreglunnar, einfalda stjórnskipulag hennar og nýta betur mannafla, sérþekkingu og fjármagn. Breytingarnar eiga hvorki…Lesa meira

true

Fjölmennri landbúnaðarsýningu að ljúka – myndasyrpa

Nú um helgina, frá föstudegi til síðdegis í dag, er sýningin Landbúnaður 2026 haldin í Laugardalshöllinni í Reykjavík. Sýningin hófst með ávarpi Trausta Hjálmarssonar formanns Bændasamtaka Íslands og Hönnu Katrínar Friðriksson landbúnaðarráðherra. Að því búnu streymdu gestir í salinn og kynntu sér það helsta á sviði landbúnaðar; tækni, afurða og þjónustu. Blaðamaður Skessuhorns var við…Lesa meira

true

Nýtt skip kom á föstudaginn til Grundarfjarðar

Síðastliðinn föstudag var snekkjunni Lady Marjan siglt inn Grundarfjörð og til nýrrar heimahafnar. Fyrirtækið Láki Tours hafði nýverið fest kaup á snekkjunni og framundan eru breytingar þar sem hún verður gert út til hvala- og lundaskoðunarferða fyrir allt að 100 farþega. Gísli Ólafsson framkvæmdastjóri kveðst í samtali við Skessuhorn vera hæstánægður með að skipið er…Lesa meira

true

Hvasst á suðvestanverðu landinu síðdegis og í kvöld

Síðdegis í dag verður vaxandi suðaustanátt, hvassviðri eða stormur seint í kvöld með hviðum yfir 35 m/s við fjöll suðvestantil á landinu, t.d. á Kjalarnesi, við Hafnarfjall og við Eyjafjöll og jafnvel einnig í Öræfum. Hvasst þvert á Reykjanesbraut með hviðum að 30 m/s. Mestur vindur verður á milli klukkan 22 í kvöld og 04…Lesa meira

true

Guðmundur Ari er nýr varaformaður Samfylkingarinnar

Guðmundur Ari Sigurjónsson var í gær kjörinn varaformaður Samfylkingarinnar. Hann var sjálfkjörinn á flokksstjórnarfundi sem haldinn var í Reykjanesbæ. Guðmundur Ari tekur við af Guðmundi Árna Stefánssyni, sem baðst lausnar frá embætti varaformanns fyrr á árinu. Í ávarpi fór Guðmundur Ari yfir þær áherslur sem hann ætlar að beita sér fyrir næstu árin sem varaformaður…Lesa meira