Skipið Lady Marjan við landfestar skömmu eftir komuna til Grundarfjarðar. Texti og myndir: TFK

Nýtt skip kom á föstudaginn til Grundarfjarðar

Síðastliðinn föstudag var snekkjunni Lady Marjan siglt inn Grundarfjörð og til nýrrar heimahafnar. Fyrirtækið Láki Tours hafði nýverið fest kaup á snekkjunni og framundan eru breytingar þar sem hún verður gert út til hvala- og lundaskoðunarferða fyrir allt að 100 farþega. Gísli Ólafsson framkvæmdastjóri kveðst í samtali við Skessuhorn vera hæstánægður með að skipið er loksins komið heim og er stefnt að því að það geti byrjað í febrúar í hvalaskoðun. Ekki er búið að gefa skipinu nafn ennþá en það verður gert á næstu misserum. Snekkjan var smíðuð í Danmörku 1986, er 27,8 metra löng og 5,9 m breið.