Dagana 25. og 26. september komu þátttakendur, ráðgjafar og samstarfsaðilar Startup Landsins saman í Borgarnesi í tveggja daga vinnustofu. Megináhersla var lögð á tengslamyndun, skapandi hugsun og áframhaldandi þróun á verkefnum þátttakenda. Ljósm. Startup Landið

Hópur frumkvöðla valinn í Startup Landið

Fjórtán nýsköpunarverkefni af öllu landinu hafa verið valin til þátttöku í viðskiptahraðlinum Startup Landið 2026. Hraðallinn er sérstaklega hannaður til að efla atvinnulíf, verðmætasköpun og nýsköpun á landsbyggðinni. „Startup Landið veitir frumkvöðlum og smáfyrirtækjum utan höfuðborgarsvæðisins verkfæri, fræðslu og sérfræðiaðstoð til að þróa hugmyndir sínar áfram. Þátttakendur sækja vinnustofur, fá leiðsögn frá reynslumiklum mentorum og vinna að mótun viðskiptalíkana, fjármögnun og markaðssetningu. Hraðallinn stendur í sjö vikur og munu teymi kynna verkefni sín á lokaviðburði á Selfossi 6. nóvember,“ segir í tilkynningu.