Massey Ferguson hefur í meira en hálfa öld verið eftirsótt dráttarvél. Þessi er með þeim öflugri og verðmiðinn er 44 milljónir króna auk vsk. Ljósm. mm

Fjölmennri landbúnaðarsýningu að ljúka – myndasyrpa

Nú um helgina, frá föstudegi til síðdegis í dag, er sýningin Landbúnaður 2026 haldin í Laugardalshöllinni í Reykjavík. Sýningin hófst með ávarpi Trausta Hjálmarssonar formanns Bændasamtaka Íslands og Hönnu Katrínar Friðriksson landbúnaðarráðherra. Að því búnu streymdu gestir í salinn og kynntu sér það helsta á sviði landbúnaðar; tækni, afurða og þjónustu. Blaðamaður Skessuhorns var við opnun sýningarinnar á föstudaginn og tók meðfylgjandi myndir. Samkvæmt lýsingu gesta í gær var fjölmenni á sýningunni og jafnvel svo margir um tíma að erfitt reyndist að njóta. Utan dyra nutu hins vegar laganna verðir þess að sekta sýningargesti fyrir að leggja bílum sínum á auða bletti.