
Skagamenn burstuðu Skallagrím í Borgarnesi
Skagamenn fóru mikinn þegar þeir heimsóttu Skallagrím í Borgarnes á föstudagskvöldið og unnu stórsigur, 111:74, í annarri umferð 1. deildar karla í körfuknattleik. ÍA hefur þar með unnið báða leiki sína í upphafi tímabilsins og sýnt mikinn styrk í sínum sóknarleik. Skagamenn, undir stjórn Hjalta Þórs Vilhjálmssonar, höfðu mikla yfirburði í Vesturlandsslagnum og sigruðu að lokum með 37 stiga mun.