Formaður og varaformaður Samfylkingarinnar ásamt fráfarandi varaformanni. Ljósm. aðsend

Guðmundur Ari er nýr varaformaður Samfylkingarinnar

Guðmundur Ari Sigurjónsson var í gær kjörinn varaformaður Samfylkingarinnar. Hann var sjálfkjörinn á flokksstjórnarfundi sem haldinn var í Reykjanesbæ. Guðmundur Ari tekur við af Guðmundi Árna Stefánssyni, sem baðst lausnar frá embætti varaformanns fyrr á árinu. Í ávarpi fór Guðmundur Ari yfir þær áherslur sem hann ætlar að beita sér fyrir næstu árin sem varaformaður Samfylkingarinnar. Þar sagði hann meðal annars að hann teldi að varaformaður eigi að leggja krafta sína í að rækta flokkinn, tengja fólkið saman og byggja hreyfinguna upp fyrir næstu kosningar og að sá undirbúningur eigi að hefjast strax.