
Hvasst á suðvestanverðu landinu síðdegis og í kvöld
Síðdegis í dag verður vaxandi suðaustanátt, hvassviðri eða stormur seint í kvöld með hviðum yfir 35 m/s við fjöll suðvestantil á landinu, t.d. á Kjalarnesi, við Hafnarfjall og við Eyjafjöll og jafnvel einnig í Öræfum. Hvasst þvert á Reykjanesbraut með hviðum að 30 m/s. Mestur vindur verður á milli klukkan 22 í kvöld og 04 í nótt en dregur hratt úr vindi eftir það.