Þórdís með verðlaun sín. Ljósm. Hvalfjarðarsveit.

Þórdís hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi læsiskennslu

Þórdís Þórisdóttir, sérkennari við Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit, hefur hlotið viðurkenningu úr minningarsjóði Rósu Eggertsdóttur fyrir framúrskarandi starf á sviði læsiskennslu. Viðurkenningin er veitt kennurum sem skara fram úr í faglegu starfi og stuðla með vandaðri og árangursríkri kennslu að auknu læsi og betri námsárangri barna.

Þórdís hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi læsiskennslu - Skessuhorn