
Lögregluembættum fækkað úr níu í þrjú
Dómsmálaráðuneytið hefur lagt fram drög að frumvarpi um umfangsmiklar breytingar á skipulagi lögreglunnar. Samkvæmt þeim verður lögregluembættum landsins fækkað úr níu í þrjú, þar af verða tvö öflug embætti á landsbyggðinni og eitt á suðvesturhorninu. Markmiðið er að efla faglega getu lögreglunnar, einfalda stjórnskipulag hennar og nýta betur mannafla, sérþekkingu og fjármagn. Breytingarnar eiga hvorki að leiða til fækkunar lögreglumanna né lokunar lögreglustöðva. Áfram verður lögð áhersla á öfluga nærþjónustu og viðbragðsgetu um allt land. Jafnframt er lagt til að aðstoðarlögreglustjórum verði fjölgað og eftirlit með lögreglu styrkt.