Fréttir

true

Skagamenn skelltu Blikum

Skagamenn svöruðu fyrir slakan leik gegn KR með afgerandi hætti þegar þeir lögðu Breiðablik 4:1 á Akranesi í gær í efri hluta Bestu deildarinnar í fótbolta. Gísli Eyjólfsson kom ÍA á bragðið gegn sínum gömlu félögum og Viktor Jónsson skoraði tvívegis. Þá gerði Markús Páll Ellertsson eitt mark fyrir heimamenn. Með sigrinum jafnaði ÍA Breiðabliki…Lesa meira

true

Hvalveiðum sumarsins er lokið

Í gær lauk 94 daga hvalveiðivertíð sumarsins. Það staðfesti Kristján Loftsson forstjóri Hvals í skriflegu svari til fréttastofu RUV. Veiðar hófust síðla í júní en vegna veðurs lágu hvalveiðibátarnir við bryggju í 25 daga á tímabilinu. Alls veiddust 93 langreyðar en leyfilegur fjöldi var 150 dýr. Í núverandi hvalveiðileyfi skilyrti ráðherra þó að 34 dýr…Lesa meira

true

Bálhvasst við fjöll

Eftir því sem líða hefur tekið á morguninn hefur vindur vaxið á suðvestanverðu landinu, eins og spáð hafði verið. Mjög hvasst er því þar sem vindur stendur af fjöllum. Á Kjalarnesi slær vindur í 40 metra á sekúndu í hviðum, en við Hafnarfjall hefur vindur farið yfir 36 m/sek. Lægðin gengur fljótlega yfir og fer…Lesa meira

true

Litríkur uppbrotsdagur í Grunnskólanum í Stykkishólmi

Fyrsti uppbrotsdagur skólaársins fór fram í Grunnskólanum í Stykkishólmi á föstudaginn. Að þessu sinni var efnt til Litahlaups í tengslum við Norræna skólahlaupið. Byrjað var á léttri og skemmtilegri upphitun áður en hlaupið var ræst. Hlaupið hófst og endaði við skólann og var hringurinn um 1,6 kílómetrar. Á leiðinni voru fimm litastöðvar þar sem litríku…Lesa meira

true

Þar sem fyrsta þráðlausa talsambandið fór fram

Á meðfylgjandi mynd, sem Svanur Steinarsson í Straumfirði tók, má sjá bátinn Emilíu AK á krabbaveiðum. Hægra megin á myndinni er Kóranes í Álftaneslandi. Þar var verslun sem Ásgeir Eyþórsson rak en hann var faðir Ásgeirs Ásgeirssonar forseta Íslands, sem fæddist á Kóranesi og ólst upp. Þegar verslun var hætt í Kóranesi var verslunarhúsið flutt…Lesa meira

true

Skagamenn taka í dag á móti bikarmeisturum Breiðabliks

Það verður líf og fjör á Jaðarsbökkum í dag klukkan 16 þegar ÍA tekur á móti nýkrýndum bikarmeisturum Breiðabliks í leik í efri hluta Bestu deildar karla í fótbolta. Fjórir leikir verða spilaðir í dag og hefjast þeir allir á sama tíma. Frítt er á leikinn á Elkem vellinum í boði fyrirtækja á Akranesi. Til…Lesa meira

true

Alvarleg röskun á virðiskeðjunni blasir við

„Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar lýsir þungum áhyggjum af skaðlegum áhrifum boðaðs ótímabundins verkfalls flugvirkja hjá Icelandair. Ferðaþjónustufyrirtæki um allt land hafa þegar fengið fjölda afbókana og fyrirspurna um niðurfellingu, endurgreiðslu og frestun ferða og alvarleg röskun á allri virðiskeðju atvinnugreinarinnar blasir við verði verkfallið að veruleika,“ segir í tilkynningu frá SAF. „Íslensk ferðaþjónusta og verðmætasköpun greinarinnar…Lesa meira

true

Suðaustan hvassviðri í nótt og í fyrramálið

Spáð er vaxandi suðaustanátt og að þykkni upp í kvöld og nótt. Austan- og suðaustan 13-20 m/s með rigningu snemma í fyrramálið, hvassast syðst, en snýst í suðlæga átt, 8-15 m/sek með skúrum síðdegis og léttir til norðaustanlands. Hiti 6 til 14 stig að deginum, hlýjast fyrir norðan. Í ábendingu frá Vegagerðinni segir: „Gengur í…Lesa meira

true

Sýna í dag tvær Soffíur við húsið sem þær urðu til

Í dag, sunnudaginn 20. september klukkan 15-17, munu bílarnir Soffía II og Soffía III verða til sýnis við gamla verkstæðishúsið í Reykholti (nú slökkvistöð), þar sem þeir voru smíðaðir og áttu lengi vel heima. Bílarnir voru um árabil skólabílar á Kleppjárnsreykjum en á sumrin notaðir í fjallferðum. Nýlega var lokið endurbyggingu Soffíu III og hefur…Lesa meira

true

Breyting á deiliskipulagi við Fellaslóð

Tillaga að breyttu deiliskipulagi við Fellaslóð 3 á Arnarstapa hefur verið auglýst. Breytingin felur í sér að byggingarreitur lóðarinnar verði stækkaður um þrjá metra til suðurs og verði alls 11 metrar að lengd, en breidd hans helst óbreytt. Gert er ráð fyrir að heildarbyggingarmagn verði að hámarki 135 fermetrar og að nýbygging verði í svipuðum…Lesa meira