Þar sem fyrsta þráðlausa talsambandið fór fram

Á meðfylgjandi mynd, sem Svanur Steinarsson í Straumfirði tók, má sjá bátinn Emilíu AK á krabbaveiðum. Hægra megin á myndinni er Kóranes í Álftaneslandi. Þar var verslun sem Ásgeir Eyþórsson rak en hann var faðir Ásgeirs Ásgeirssonar forseta Íslands, sem fæddist á Kóranesi og ólst upp. Þegar verslun var hætt í Kóranesi var verslunarhúsið flutt til Reykjavíkur og stendur enn í dag við Bókhlöðustíg 8.