Hitað upp fyrir hlaupið. Texti og myndir: GSP

Litríkur uppbrotsdagur í Grunnskólanum í Stykkishólmi

Fyrsti uppbrotsdagur skólaársins fór fram í Grunnskólanum í Stykkishólmi á föstudaginn. Að þessu sinni var efnt til Litahlaups í tengslum við Norræna skólahlaupið. Byrjað var á léttri og skemmtilegri upphitun áður en hlaupið var ræst. Hlaupið hófst og endaði við skólann og var hringurinn um 1,6 kílómetrar. Á leiðinni voru fimm litastöðvar þar sem litríku litadufti var kastað yfir nemendur. Þeir gátu valið hvort þeir færu einn eða fleiri hringi og hvort þeir gengju, skokkuðu eða hlupu.

Litríkur uppbrotsdagur í Grunnskólanum í Stykkishólmi - Skessuhorn