Hvalur á skurðarplaninu. Ljósm. úr safni Skessuhorns

Hvalveiðum sumarsins er lokið

Í gær lauk 94 daga hvalveiðivertíð sumarsins. Það staðfesti Kristján Loftsson forstjóri Hvals í skriflegu svari til fréttastofu RUV. Veiðar hófust síðla í júní en vegna veðurs lágu hvalveiðibátarnir við bryggju í 25 daga á tímabilinu. Alls veiddust 93 langreyðar en leyfilegur fjöldi var 150 dýr. Í núverandi hvalveiðileyfi skilyrti ráðherra þó að 34 dýr skyldu veidd austanlands, en vegna fjarlægðar var ekki raunhæft að veiða dýr þar og draga í Hvalfjörð. Raunverulegur kvóti var því 116 dýr. Byssur, skutlar og sprengjur voru teknar úr hvalveiðibátunum í Hafnafirði en þeim siglt síðdegis í gær til Reykjavíkur og bundnir við bryggju í Ægisgarði.

Hvalveiðum sumarsins er lokið - Skessuhorn