Skagamenn taka í dag á móti bikarmeisturum Breiðabliks

Það verður líf og fjör á Jaðarsbökkum í dag klukkan 16 þegar ÍA tekur á móti nýkrýndum bikarmeisturum Breiðabliks í leik í efri hluta Bestu deildar karla í fótbolta. Fjórir leikir verða spilaðir í dag og hefjast þeir allir á sama tíma. Frítt er á leikinn á Elkem vellinum í boði fyrirtækja á Akranesi.