
Bálhvasst við fjöll
Eftir því sem líða hefur tekið á morguninn hefur vindur vaxið á suðvestanverðu landinu, eins og spáð hafði verið. Mjög hvasst er því þar sem vindur stendur af fjöllum. Á Kjalarnesi slær vindur í 40 metra á sekúndu í hviðum, en við Hafnarfjall hefur vindur farið yfir 36 m/sek. Lægðin gengur fljótlega yfir og fer að vindur að ganga niður undir hádegi í dag.