Alvarleg röskun á virðiskeðjunni blasir við

„Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar lýsir þungum áhyggjum af skaðlegum áhrifum boðaðs ótímabundins verkfalls flugvirkja hjá Icelandair. Ferðaþjónustufyrirtæki um allt land hafa þegar fengið fjölda afbókana og fyrirspurna um niðurfellingu, endurgreiðslu og frestun ferða og alvarleg röskun á allri virðiskeðju atvinnugreinarinnar blasir við verði verkfallið að veruleika,“ segir í tilkynningu frá SAF.