Suðaustan hvassviðri í nótt og í fyrramálið

Spáð er vaxandi suðaustanátt og að þykkni upp í kvöld og nótt. Austan- og suðaustan 13-20 m/s með rigningu snemma í fyrramálið, hvassast syðst, en snýst í suðlæga átt, 8-15 m/sek með skúrum síðdegis og léttir til norðaustanlands. Hiti 6 til 14 stig að deginum, hlýjast fyrir norðan.

Í ábendingu frá Vegagerðinni segir: „Gengur í hvassa  suðaustanátt í nótt með hviðum um 35 m/s í vindstrengjum við fjöll sunnantil á landinu í nótt. Lægir við Hafnarfjall og á Kjalarnesi um klukkan 8 í fyrramálið, en áfram snarpar vindhviður undir Eyjafjöllum og í Öræfum til kl. 11.“